Bocciadeild Völsungs

Bocciamót, myndir og fleira
clockhere

Tenglar

Norðurlandsmót á Húsavík

atburður liðinn í

6 mánuði

12 daga

17.10.2011 13:55

Vestmannaeyjar

Góð ferð var gerð til Vestmannaeyja helgina 7.- 10. okt s.l. Spilamennska gekk ágætlega, tvenn verðlaun í húsi Kiddi fékk brons í 1. deild og Dagur gull í 6. deild. Allir gerðu sitt besta. 210 keppendur voru á mótinu og var keppt í 7 deildum og 30 manns í hverri deild. Völsungur átti 10 keppendur: Kiddi og Jóna spiluðu í 1. deild (sterkasta deildin) Lindi og Ási spiluðu í 2. deild. Anna María og Olli spiluðu í 3. deild. Gerða spilaði í 4. deild. Og Sylgja, Lena og Dagur í 6. deild. Þetta var langt og strangt ferðalag, sumir pínu sjóveikir í Herjólfi sem silgdi frá Þorlákshöfn´. Lokahófið var mjög skemmtilegt, góður matur og Páll Óskar sá um ballið, þar sem fólk dansaði fram að miðnætti. Jóna Rún var heppin í happadrættinu, fékk forláta prentara. Það var þreyttur hópur sem kom á Húsavíkina á mánudagskvöldið, en allir mjög ánægðir með helgina.
Myndir frá mótinu komnar í myndaalbúmið.

 

03.10.2011 13:34

Haust 2011

Sælt veri fólkið, þá er starfsemin komin í gang, Anna María að þjálfa og ákveður hún hvernig æfingar verða.
Þá er það næsta mál á dagskrá sem er ferðin til Vestmannaeyja á íslandsmótið í einstaklingskeppni. Eins og málin standa núna bendir allt til þess að Herjólfur sigli frá Þorlákshöfn, ekki sérlega góðar fréttir, en það gæti breytst, skárri fréttirnar eru að spáin fyrir föstudag m.t.t.siglingar er ágæt, svo er bara spurning um ferðaveðrið suður. Allir eiga að vera búnir að fá blað með kostnaði og ferðaáætlun. emoticon
  • 1
Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 30
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 27224
Samtals gestir: 8500
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 00:40:17